Verkstæði Nýherja

Nýherji státar af einu stærsta tölvuverkstæði landsins og er lögð mikil áhersla á að þar starfi ávallt fremstu sérfræðingar landsins á þessu sviði.

Sérfræðingar á verkstæði Nýherja annast viðgerðir á Lenovo ThinkPad fartölvum, ThinkCentre borðtölvum, auk viðgerða á prenturum, ljósritunarvélum, plotterum og faxtækjum. Sérfræðingar verkstæðisins hafa hlotið fjölda vottana frá helstu samstarfsaðilum, s.s. IBM, Lenovo, Microsoft, Canon og Lexmark.

Nýherji er vottaður ,,Authorized IBM Service Partner" sem þýðir meðal annars að verkstæðið fullnægir kröfum IBM til viðhalds og viðgerða á hæsta stigi, auk þess að hafa greiðan aðgang að sérfræðingum IBM víða um heim reynist þess þörf.

Verkstæðið er einnig ,,IBM Premium Warranty Service Provider" sem er sérstök viðurkenning frá IBM sem mælir áreiðanleika verkstæðisins og ánægju viðskiptavina.

Nýherji kappkostar að eiga ætíð til varahluti á lager í samræmi við kröfur birgja. Stöðugt og traust samband við samstarfsaðila og skipulagðar vörusendingar stuðla að öryggi í rekstri fyrirtækja.

Viðgerðir á búnaði

Tölvur Þjónustuaðilar Sími
IBM/Lenovo Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5161677
Sony Vaio Nördinn Ármúli 42
5712800
Prentarar/Skannar þjónustuaðilar Sími
Canon Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5161677
Lexmark Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5712800
Sjónvörp þjónustuaðilar Sími
Sony Sónn Faxafeni 12
5523150
Skjávarpar þjónustuaðilar Sími
NEC Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5161677
Toshiba Verkstæði Nýherja Köllunarklettsvegi 2 5161677
Hljóðkerfi þjónustuaðilar Sími
Bose Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5161677
Sony Sónn Faxafeni
5161677
Sjóðsvélar þjónustuaðilar Sími
Omron Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5161677
Casio Verkstæði Köllunarklettsvegi 2 5161677
Myndavélar þjónustuaðilar Sími
Canon Beco Langholtsvegi 84 5333411
Sony Sónn Faxafeni 5523150

Þjónustuaðilar á landsbyggðinni:

Tengill Sauðárkróki Dalbraut 1 455-9901
Omnis Akranes Tjarnargötu 7 444-9914
Omnis Keflavík Hesteyri 2 455-9200
Omnis Borgarnesi Borgarbraut 61 444-9912
Martölvan Hornafirði Litlubrú 1 478-2393
TRS Selfossi Eyrarvegi 37 480-3300
Ráðbarður Hvammstanga Höfðabraut 6 455-2511/451-2260
Tölvun Vestmannaeyjar Strandvegi 51 481-1122

Verkstæði Nýherja.

Staðsetning og afgreiðslutími verkstæðis

Verkstæðið að Köllunarklettsvegi 2 er opið virka daga frá 09:00 - 17:00.

Síminn er 569 7777 og netfangið er verkstaedi@nyherji.is.