Verslanir Nýherja

Nýherji rekur fjölbreytt úrval verslana til að koma til móts við þarfir viðskiptavina. Verslanir Nýherja bjóða breitt úrval lausna og búnaða frá heimsþekktum framleiðendum, bæði fyrir fyrirtæki og einstaklinga.

Verslun Nýherja í Borgartúni

Verslun Nýherja er því ein elsta starfandi raftækjaverslun á landinu. Þar er að finna breitt úrval af hágæðavörum sem fyrirtækið selur, bæði einstaklingum og fyrirtækjum. Verslun Nýherja í Borgartúni er opin frá 9-18 virka daga og 11-15 á laugardögum.

Hágæða vörumerki í Kringlunni

Verslun Nýherja býður ennfremur breitt úrval af búnaði og lausnum frá sínum helstu vörumerkjum; Canon, Bose og Lenovo auk annarra vandaðra vörumerkja. Verslun Nýherja í Kringlunni er opin frá 10-18:30 mánudaga til miðvikudaga, 10-21 á fimmtudögum, 10-19 föstudaga, 10-18 laugardaga og 13-18 sunnudaga.

Sony Center í heimsklassa

Í Sony Center í Kringlunni og í Borgartúni er landsins mesta úrval af Sony rafrækjum á landinu. Sony Center verslanir er að finna um allan heim og hafa það allar að markmiði að skapa fagverslanir með áherslu á Sony vörumerkið þar sem starfsfólkið veitir framúrskarandi ráðgjöf við val á réttu tæki, hvort sem um er að ræða sjónvarp, myndavél, vídeoupptökuvél eða annan vandaðan búnaði sem er í boði í versluninni.  Kíktu á úrvalið í Sony Center.

Söluskrifstofa á Akureyri

Þá starfrækir Nýherji söluskrifstofu í Kaupangi á Akureyri, en þar er að finna vandaða þjónustu og gott úrval af búnaði fyrir einstaklinga og fyrirtæki.

Netverslun - Þegar þér hentar

Fyrirtækið leggur líka mikla áherslu á að vera með góða netverslun fyrir viðskiptavini sína þar sem hægt er að skoða og versla allar vörur sem Nýherji selur. Frí heimsending er á næsta pósthús. Smelltu þér á netverslun.is.

Verslanir Nýherja.

Þú finnur úrvalið hjá okkur

Far- og borðtölvur frá Lenovo. Prentarar frá Canon og Lexmark.

Stafrænar myndavélar frá Canon og Sony. Myndvarpar frá ASK, Sony, Toshiba og NEC.

Hljóðkerfi frá Bose. Ljósritunarvélar og faxtæki frá Canon. Reiknivélar frá Canon og Facit.

Símbúnaður frá Aastra o.fl. Höfuðheyrnartól frá Plantronics.

Rekstrarvörur, s.s. blek, pappír, segulbönd, geisladiskar, músamottur, skjásíur o.m.fl.