Lenovo Traustur ferðafélagi
Kínverski töluframleiðandinn Lenovo er annar stærsti framleiðandi á tölvubúnaði í heiminum í dag. Lenovo tók við framleiðslu IBM á tölvubúnaði árið 2004 og hefur upp frá því vaxið hröðum skrefum, einkum á árinu 2011. Búast má við sambærilegum vexti á árinu 2012.
Margverðlaunaðar og umhverfisvottaðar tölvur
Lenovo er margverðlaunaður fyrir framleiðslu sína á tölvubúnaði. Meðal annars fengu Lenovo tölvur hæstu einkunn fyrir gæði og áreiðanleika í könnun Technology Business Research meðal 800 meðalstórra og stórra fyrirtækja í Norður- Ameríku á árinu 2010.
Þá hefur Lenovo hlotið umhverfisvottun frá norræna umhverfismerkinu Svaninum fyrir framleiðslu á orkusparandi tölvum en framleiðandinn hefur lagt áherslu á umhverfisvæna framleiðslu á búnaði sínum. Nokkur fjöldi Lenovo tölva hafa því vottun Svansins.
Lenovo ThinkPad - Fyrir þá sem gera kröfur
ThinkPad fartölvur eru hugsaðar fyrir kröfuharða notendur. Yfirburðatækni, gæði, lág bilanatíðni og öryggi eru í fyrirrúmi.
Meðal ástæðna fyrir þessum fjölda verðlauna eru yfirburða lyklaborð, gæði og svo hin margrómaða ThinkVantage tækni þar sem notendaumhverfið, rekstrarkostnaður, umsýsla og öryggi eru í fyrirrúmi. Einnig hefur Lenovo verið fyrst á markað með margar nýjungar í gegnum tíðina, svo sem hreyfiskynjara fyrir diska og fingrafaralesara í fartölvum.
Lenovo IdeaPad - Nýstáleg hönnun
Lenovo tölvuframleiðandinn hefur breikkað vöruframboð sitt með hinum smá og knáu Ideapad heimilistölvum, sem er ný tegund fartölva, ætlaðar námsfólki á yngri stigum og til heimilisnota.
Lenovo ThinkCentre borðtölvur - Áreiðanleiki og góð ending
Helsta einkenni Lenovo ThinkCentre borðtölva er góð ending og áreiðanleiki. Tölvubúnaður frá Lenovo er fyrir kröfuharða notendur því hann einfaldar daglega notkun og eykur öryggi. Má nefna að Lenovo ThinkCentre línan hlaut bestu einkunn allra framleiðanda í úttekt Technology Business Research, Inc. fyrir 3Q og 4Q 2009.
Traust og örugg þjónusta
Tölvuverkstæði Nýherja er eitt stærsta sinnar tegundar á landinu en þar starfa á þriðja tug sérfræðinga. Varahluta- og viðgerðarþjónusta fyrir Lenovo tölvur er sinnt af tæknimönnum sem hlotið hafa gæðavottun Lenovo.
Lenovo auglýsingin - Þessi slær öllu við

Hafðu samband
Fylltu út formið hér fyrir neðan og okkar ráðgjafar munu hafa samband við þig. Einnig getur þú haft samband með tölvupósti eða í gengum síma. Kærar þakkir.
- Sími 5697700
- Senda tölvupóst
Kíktu á úrvalið í netverslun
Kíktu líka á netverslun.is. Þar er að finna úrval Lenovo tölvbúnaðar.

