Microsoft hugbúnaður
Nýherji býr að öflugri þekkingu sérfræðinga sem geta ráðlagt þér réttu leiðina í Microsoft leyfismálum. Kynntu þér mismunandi leiðir varðandi Microsoft hugbúnað og leyfi og bókaðu kynningu hjá ráðgjöfum okkar.
Við framkvæmum úttekt á stöðu leyfismála hjá þér og ráðleggjum þér um bestu og hagkvæmustu leiðina sem hentar þér. Við vitum að leyfismál geta verið flókin og ekki augljóst hvaða leið er hagkvæm miðað við þínar þarfir. Sérfræðingar okkar greina þarfir fyrirtækis þíns þér að kostnaðarlausu og skila tillögum og eða tilboðum í hugbúnaðarleyfi.
Fáðu tilboð í Microsoft leyfi
Hjá mörgum fyrirtækjum og stofnunum eru Microsoft hugbúnaðarleyfi töluverð fjárfesting. Fáðu tilboð frá Nýherja í Microsoft leyfi eða leyfissamning og skoðaðu hvort við getum ekki hagrætt í leyfisinnkaupum. Sendu okkur fyrirspurn á sala@nyherji.is eða hafðu samband í síma 569-7700.
Microsoft þjónusta Nýherja
Microsoft hefur uppfært verkfærakistuna fyrir Office 2010. Í henni eru fjölmargar nýjungar sem hjálpa fyrirtækjum að koma hugmyndum sínum á framfæri á skýran og aðgengilegan hátt.
- Fjarstýrðu kynningunni og nýttu þér Broadcast Slideshow þegar þú vilt kynna vöru og þjónustu með PowerPoint í gegnum vefinn.
- Komdu á skipulagi og haltu utan um hugmyndir og glósur í OneNote.
- Auktu samvinnuna með Office 2010 geta fleiri en einn unnið í sama skjalinu hvort sem það er í gegnum netið, tölvuna eða farsímann.
- Nýttu þér kosti Excel og öfluga myndbirtingu gagna. Nú getur þú eytt meiri tíma í greiningu gagna í stað útfærslu þeirra.
Viltu hagræða í Microsoft leyfiskaupum
Nýherji býður vandaða og trausta leyfisráðgjöf og getur hjálpað þér að finna haghvæmustu leiðina í gegnum frumskóg Microsoft leyfissamninga.
- Ertu með réttu leyfin?
- Ertu að borga miðað við núverandi notkun?
- Ertu með rétta samningsformið miðað við rekstur?
- Viltu skoða möguleika til hagræðingar í leyfiskaupum?
Nýherji býr yfir margra ára reynslu og þekkingu í Microsoft leyfisráðgjöf og sölu.
Nánari upplýsingar veita hugbúnaðarráðgjafar Nýherja sem bjóða þér faglega ráðgjöf við val á réttu Microsoft lausninni. Síminn er 569 7700 og netfangið er microsoft@nyherji.is

Hafðu samband
Fylltu út formið hér fyrir neðan og okkar ráðgjafar munu hafa samband við þig. Einnig getur þú haft samband með tölvupósti eða í gegnum síma. Kærar þakkir.
- Sími 5697700
- Senda tölvupóst
