Tækjaleiga

Veislur, sýningar, ráðstefnur, fundir, tónleikar og slíkir viðburðir kalla á viðamikinn tæknilegan undirbúning og því skiptir lykilatriði að velja réttan aðila sem boðið getur heildarlausnir á þessu sviði.

Hljóðlausnir - Myndlausnir - Ljósalausnir - Aðrar Lausnir

Tækjaleiga Nýherja er sérhæfð í tæknimálum fyrir veislur, sýningar, ráðstefnur, fundi og tónleika af hvaða stærðargráðu sem er. Tækjaleiga hefur til útleigu allar þær lausnir sem til þarf, s.s. hljóð- og myndlausnir, ljósalausnir, tölvulausnir, prentlausnir, túlkalausnir o.fl.

Þekking og reynsla

Innan Tækjaleigu starfa sérfræðingar sem búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði.  Hafa þeir annast tæknimál á öllum helstu ráðstefnum, sýningum, kynningum og árshátíðum hér á landi um langt árabil.  Má þar nefna NATO ráðstefnuna, Norðurlandaráðstefnuna, ráðstefnu Alþjóða Ólympíunefndarinnar og Sjávarútvegssýninguna, árshátíðir fyrirtækja o.fl.

Hafðu samband við tækniráðgjafa Tækjaleigu Nýherja sem bjóða þér faglega ráðgjöf við hönnun, uppsetningu og val á réttu lausnunum fyrir þann viðburð sem þú ætlar að setja upp.

Tækjaleiga Sense er í Borgartúni 37. Sími: 585 3880. Netfang: leiga@nyherji.is

Hafðu samband

Fylltu út formið hér fyrir neðan og okkar ráðgjafar munu hafa samband við þig. Einnig getur þú haft samband með tölvupósti eða í gengum síma. Kærar þakkir.