Umsjá
Umsjá Nýherja er opið allan sólarhringinn, alla daga ársins. Sérfræðingar Nýherja veita viðskiptavinum upplýsingatækniþjónustu í takt við væntingar og gildandi samningsmarkmið. Umsjá er skipt upp í nokkra hópa eftir eðli þjónustu.
Umsjá meðhöndlar fyrirspurnir vegna ábyrgðarsamninga, alrekstrarsamninga, RAP samninga og alla aðra samninga sem fyrirtæki hafa gert við Nýherja. Umsjá samanstendur af starfsmönnum með víðtæka reynslu af rekstri og þjónustu í upplýsingatækni.
Þjónustuborð
Á þjónustuborði er veitt aðstoð í gegnum síma, þar sem mál eru greind og viðeigandi lausn fundin. Einnig geta viðskiptavinir sent Þjónustuborði ósk um aðstoð með tölvupósti eða í gegnum vefviðmót. Sérfræðingar Þjónustuborðs leysa málin símleiðis með því að yfirtaka tölvu með samþykki viðkomandi en ef þess gerist þörf þá sendir Nýherji sérfæðinga á staðinn.
Viðskiptavinir Nýherja geta haft samband við Þjónustuborðið allan sólarhringinn í síma 516-1600.
Vettvangsþjónusta
Vettvangsþjónusta felur í sér viðveru tæknimanns á vinnustað viðskiptavinar. Vettvangsþjónustumaður aðstoðar notendur og sinnir viðhaldi. Það er undir viðskiptavini komið hvort hann kýs að hafa vettvangsþjónustumann á staðnum alla daga vikunnar eða með reglulegum heimsóknum.
Vöktunarþjónusta
Nýherji býður upp á vöktunarþjónustu allan sólarhringinn allan ársins hring þar sem sérfræðingar vakta tölvukerfi viðskiptavina úr höfuðstöðvum Nýherja. Við vöktun er notaður afar fullkomin búnaður í eigu Nýherja sem vaktar kerfi viðskiptavina í rauntíma. Þetta á bæði við um kerfi sem eru í hýsingu hjá Nýherja en einnig um kerfi sem eru í rekstri í húsnæði viðskiptavina. Það fer eftir óskum viðskiptavinar hvort vaktmenn Nýherja komi upplýsingum um villuboð áfram til tæknimanna viðskiptavinar eða tæknimanna Nýherja sem koma kerfum aftur í rétt horf.
Kerfisveita - Fast mánaðargjald og engir bakreikningar
Í altækum rekstri sér Nýherji alfarið um rekstur upplýsingakerfa fyrirtækisins og á það bæði við um útstöðvar og miðlægan rekstur. Það eykur stórlega öryggi og þægindi í rekstri tölvukerfa og búnaðar. Stjórnendur fyrirtækja hafa í auknum mæli áttað sig á hagræðinu sem fylgir því að útvista tölvurekstri fyrirtækisins. Með þessu móti greiðir viðskiptavinurinn fasta mánaðarlega upphæð fyrir rekstur upplýsingakerfa sinna og getur gengið út frá því sem vísu að þau séu í öruggum rekstri.

Hafðu samband
Fylltu út formið hér fyrir neðan og okkar ráðgjafar munu hafa samband við þig. Einnig getur þú haft samband með tölvupósti eða í gegnum síma. Kærar þakkir.
- Sími 5697700
- Senda tölvupóst
