Ábyrgðarskilmálar
Hér fara á eftir Almennir skilmálar um viðskiptakjör Nýherja. Þeir gilda um öll viðskipti Nýherja (og viðskipti allra dótturfélaga þess, á hverjum tíma, þ.m.t. TM Software, Applicon, EMR Hugbúnaður, Vigor, SimDex, Klak og Viðja) og viðskiptavina þeirra, nema um annað sé samið sérstaklega. Almennu skilmálarnir, ásamt viðkomandi sérskilmálum auk samnings sjálfs og eftir atvikum samningsviðauka við viðskiptamann, fela að jafnaði í sér heildarsamning aðilanna um viðskiptin. Ósk um að stofna til viðskipta við Nýherja geta viðskiptamenn beint til félagsins munnlega (þ.á.m. í síma), með faxi eða um tölvupóst eftir því um hvaða vöru eða þjónustu er að ræða.
Samningur getur verið munnlegur en þó er oftast þörf á að staðfesta hann skriflega, ef um stærri viðskipti er að ræða. Í stöku tilvikum geta samningar haft að geyma aðra skilmála en hér hafa verið nefndir. Slíkir skilmálar koma þá annað hvort í stað hérgreindra skilmála eða teljast viðauki þeirra og verða slíkir skilmálar kynntir, þegar við á. Þar sem í neðangreindum skilmálum er vísað til Nýherja, er með hliðsjón af framangreindu, átt við bæði Nýherja og öll dótturfélög þess, til staðar á hverjum tíma.
Nýjar útgáfur
Nýherji áskilur sér rétt til að breyta bæði Almennum skilmálum og Sérskilmálum með dagsettri endurútgáfu þeirra. Allir samningar, sem gengið verður frá eftir þá dagsetningu, falla undir hina nýju skilmála.
Gildistaka
Almennir skilmálar Nýherja og dótturfélaga janúar 2011 taka gildi 1. janúar 2011.

Hafðu samband
Fylltu út formið hér fyrir neðan og okkar ráðgjafar munu hafa samband við þig. Einnig getur þú haft samband með tölvupósti eða í gengum síma. Kærar þakkir.
- Sími 5697700
- Senda tölvupóst

