Þjónusta

_MG_6254_.jpg
2935.jpg

Eitt öflugasta þjónustufyrirtæki landsins í upplýsingatækni

Skoða vöruúrval Nýherja.


Innan Nýherja starfar fjöldi sérfræðinga sem hafa yfir að ráða mikilli þekkingu og reynslu á sviði upplýsingatækni, hvort sem er á sviði miðlægra lausna eða notendabúnaðar.

Vöruúrval Nýherja samanstendur af tölvum og tæknibúnaði fyrir fyrirtæki og einstaklinga s.s. netþjónum, símkerfum, tölvum, hugbúnaði, prentlausnum og rekstrarvöru sem félagið býður einnig í gegnum einstök dótturfélög.

Nýherji hefur byggt upp breitt framboð af tæknibúnaði, þar sem viðskiptavinir geta fundið búnað og lausnir til að mæta þörfum sínum á sviði upplýsinga-tæknibúnaðar. Nær það bæði til miðlaralausna og innri kerfa, sem og notendabúnaðar.

Veigamesti þátturinn í vöruframboði Nýherja er búnaður frá IBM, sem er meginbirgir fyrirtækisins, enda er Nýherji stofnaður á grunni þess rekstrar sem IBM hafði á Íslandi.

Í ljósi aukinna viðskipta á netinu á tæknibúnaði hefur Nýherji eflt þjónustu við viðskiptavini sína enn frekar með opnun netverslunar, netverslun.is. Þar má velja úr um 2.000 vörutegundum frá helstu framleiðendum, sem Nýherji og dótturfélög eru umboðsaðilar fyrir.

Til að fá samband við tæknimann eða verkstæði þá vinsamlega hafðu samband við Þjónustuver Nýherja (Nú þjónustver Skyggnis, sem er rekstrar- og tæknifélag í eigu Nýherja) sem tekur á móti verkbeiðnum viðskiptavina.

Fáðu tilboð í viðskipti

Hafðu samband við ráðgjafa Nýherja og fáðu ráðgjöf eða tilboð í viðskipti. Þú getur fyllt úr formið hér fyrir neðan eða haft samband í síma 569 7777 og sent tölvupóst á netfangið soluradgjof@nyherji.is

* Nafn vantar!
* Fyrirtæki vantar!
* Símanúmer vantar!
* Fyrirspurn vantar!
NÝHERJI
Borgartúni 37 - 105 Reykjavík - s: 569-7700 Kaupvangi v/Mýrarveg - 600 Akureyri - s: 569-7620 nyherji@nyherji.is