Aðstoð við einstaklinga
Þarftu aðstoð?
Veldu réttu leiðina
Nýherji veitir þjónustu á öllum þeim búnaði sem fyrirtækið býður. Það eru nokkrar leiðir til að sækja þá þjónustu.
- Leiðbeiningar á Netinu. Þessi þjónusta er ókeypis.
- Þjónusta á verkstæði. Verkstæði Nýherja er staðsett í Borgartúni 37. Auk viðgerða fer þar fram uppsetning á vél- og hugbúnaði og jaðartækjum, og neyðarþjónusta. Þjónusta verkstæðis er gjaldfærð.
- Þjónusta á staðnum. Sé þess óskað sendir Nýherji sér-fræðing á staðinn til að sinna viðgerð. Sé óskað eftir þessari þjónustu er haft samband við Þjónustuver Nýherja í síma 569 7777. Þessi þjónusta er gjaldfærð.
Ábyrgðarþjónusta
Hér má finna skjal sem segir m.a. frá ábyrgð Nýherja á vél- og hugbúnaði.
Ábyrgðarvinna Nýherja er að jafnaði unnin á verkstæði fyrir-tækisins.
Hægt er að kaupa aukna ábyrgð með búnaði frá helstu birgjum Nýherja. Aukin ábyrgð getur tekið til framlengds ábyrgðartíma, ábyrgð á staðnum - on-site - eða ábyrgðarþjónustu utan hefðbundins opnunartíma.

