Fjármögnun

Hagstæðir fjármögnunarkostir

Fjármögnun - með IBM Global Financing

Nýherji býður viðskiptavinum sínum fjármögnunarlausnir á þeim búnaði og þjónustu sem fyrirtækið selur, í samstarfi við IBM Global Financing, sem er einn stærsti lánsaðili á sviði upplýsingatækni. IBM GFS þjónustar yfir 100.000 fyrirtæki í heiminum í yfir 45 löndum.

Fjarmognun_350px

 

Fjölmörg fyrirtæki á Íslandi hafa nú þegar nýtt sér kosti þess að fjármagna upplýsingatækni fyrirtækisins á þennan hátt með góðum árangri.

Nýherji býður því viðskiptavinum sínum upp á tvenns konar fjármögnunarkosti.

IBM Global Financing – Alþjóðleg kjör

Viðskiptavinir Nýherja geta nýtt sér þjónustu IBM Global Financing við fjármögnun á öllum vörum og þjónustu Nýherja ásamt búnaði frá öðrum viðurkenndum þjónustuaðilum og framleiðendum.

Um er að ræða alhliða fjármögnunarlausnir sem standast alþjóðlegan samanburð hvað varðar hagkvæmni, sveigjanleika og kostnað.

Glitnir – Þægileg og skjót þjónusta

Í samvinnu við Glitni býður Nýherji viðskiptavinum sínum einnig upp á fjármögnunarleigu á búnaði og þjónustu. Um er að ræða trausta fjármögnunarlausn þar sem greiðslum á gengistryggðu láni getur verið dreift yfir 36 mánaða tímabil.

Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Nýherja sem bjóða þér faglega ráðgjöf á því hvernig þú getur fjárfest í hagkvæm-ari búnaði og bætt fjármagnsflæði.



Mikilvægt er að velja fjármögnunaraðila sem getur unnið verkefnið hratt, hafi reynsluog byggi á traustum grunni.

Bæklingur um IBM Global Financing á íslensku.

Síminn er 569 7700 og netfangið er fjarmognun@nyherji.is

 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefurvefur - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.