Tækjaleiga
Tækjaleiga er með rétta búnaðinn
Fyrir fundi, ráðstefnur, veislur, kynningar o.fl.
Veislur, sýningar, ráðstefnur, fundir, tónleikar og slíkir viðburðir kalla á viðamikinn tæknilegan undirbúning og því skiptir lykilatriði að velja réttan aðila sem boðið getur heildarlausnir á þessu sviði. Tækjaleigan er nú undir merkjum Sense, sem er eitt af dóttufélögum Nýherja.
Hljóðlausnir – Myndlausnir – Ljósalausnir – Aðrar lausnir
Tækjaleiga Sense (áður Nýherja) er sérhæfð í tæknimálum fyrir veislur, sýningar, ráðstefnur, fundi og tónleika af hvaða stærðargráðu sem er.
Tækjaleiga hefur til útleigu allar þær lausnir sem til þarf, s.s. hljóð- og myndlausnir, ljósalausnir, tölvulausnir, prentlausnir, túlkalausnir o.fl.
Þekking og reynsla
Innan Tækjaleigu starfa sérfræðingar sem búa yfir mikilli þekkingu og reynslu á þessu sviði.
Hafa þeir annast tæknimál á öllum helstu ráðstefnum, sýningum, kynningum og árshátíðum hér á landi um langt árabil.
Má þar nefna NATO ráðstefnuna, Norðurlandaráðstefnuna, ráðstefnu Alþjóða Ólympíunefndarinnar og Sjávarútvegssýninguna, árshátíðir fyrirtækja o.fl.
Hér er hægt að nálgast tækjalista yfir þann búnað sem tækjaleigan býður.
Hafðu samband við tækniráðgjafa Tækjaleigu Sense sem bjóða þér faglega ráðgjöf við hönnun, uppsetningu og val á réttu lausnunum fyrir þann viðburð sem þú ætlar að setja upp.
Tækjaleiga Sense er staðsett í Borgartúni 37
- Sími: 569 7403 og 569 7407
- Fax: 569 7401
- Netfang: leiga@nyherji.is
Tengiliðir:
Gunnar Þ. Möller
Tæknistjóri Tækjaleigu Sense.
Sími: 569 7407
Reynir Jónasson
Tækniráðgjafi Tækjaleigu Sense.
Sími: 569-7403

