Fréttir og birt efni

Breytt dagsetning aðalfundar Nýherja hf.

29.1.2010

Dagsetningu aðalfundar Nýherja hf. hefur verið breytt vegna nýlegra breytinga á hlutafélagalögum nr. 2/1995, þar sem kveðið er á um boðun aðalfundar minnst þremur vikum fyrir fund.

Nýherja húsiðAðalfundur Nýherja hf. verður haldinn í ráðstefnusal félagsins, Borgartúni 37, föstudaginn 19. febrúar 2010 kl. 16.00.

dagskrá fundarins:

1. Venjuleg aðalfundarstörf samkvæmt 4.5. gr. í samþykktum félagsins.

2. Tillaga um heimild stjórnar til aukningar hlutafjár sbr. 41. gr. hlutafélagalaga.

3. Tillaga um heimild félagsins til kaupa á eigin hlutum sbr. 55. gr. hlutafélagalaga.

4. Önnur mál, löglega upp borin.

Atkvæðaseðlar og fundargögn verða afhent á fundarstað.

Hluthafar sem ekki geta sótt fundinn, en hyggjast veita öðrum umboð, verða að gera það skriflega. Ársreikningur og tillögur sem lagðar verða fram á fundinum birtast á vef félagsins, nyherji.is, þann 5. febrúar nk.



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.