Fréttir og birt efni
Nýherji birtir ársuppgjör 2009
Helstu niðurstöður fyrir árið 2009:
• Heildartekjur Nýherja samstæðunnar voru 14.332 mkr á árinu og drógust saman um 4% frá fyrra ári.
• Jákvæð afkoma af vörusölu innanlands, en tap af hugbúnaðarstarfsemi, tækniþjónustu og ráðgjöf.
• Verulegur halli á rekstri dótturfélaga í Danmörku í fjórða ársfjórðungi.
• EBITDA ársins var neikvæð um 62 mkr, en afkoma batnaði innanlands á síðari árshelmingi. Heildartap ársins nam 686 mkr
• Nýherji á í harðri og vaxandi samkeppni við endurreist fyrirtæki í eigu banka.
• Viðskiptavild er færð niður um 322 mkr á grundvelli niðurstöðu virðisrýrnunarprófa dótturfélaga
• Ráðist hefur verið í víðtækar hagræðingaraðgerðir, m.a. hefur starfsmönnum á Íslandi fækkað um nær eitt hundrað á árinu.
• Unnið er með viðskiptabönkum félagsins að endurskipulagningu skulda jafnhliða útgáfu á nýju hlutafé og verður á aðalfundi lögð fram tillaga um að auka megi hlutafé um allt að 120 mkr að nafnvirði.
Ársuppgjör Nýherja hf. fyrir árið 2009.

