Fréttir og birt efni

CES í Las Vegas: Lenovo með flottustu tölvurnar

3.2.2010

„Sýningin var vel heppnuð og er orðin nokkuð stór, en þarna voru um 120 þúsund manns,“ segir Björn Gunnar Birgisson, yfirvörustjóri PC tölva og íhluta hjá Nýherja í samtali við Fréttablaðið. Hann sótti heim CES-raftækjasýninguna sem haldin er í Las Vegas í Bandaríkjunum í janúar ár hvert.

CES_2010Mikið púður var lagt í þrívíddarsjónvörp á sýningunni og nær allir framleiðendur að kynna nýja tækni á því sviði. „Menn spá því að árið 2012 verði nánast helmingur allra sjónvarpstækja þrívíddartæki,“ segir Björn Gunnar. Í Fréttablaðinu segir að í Bretlandi sé ráðgert að sala á þrívíddarsjónvarpstækjum hefjist þegar í apríl á þessu ári.

Önnur ný tækni sem er að ryðja sér til rúms eru svo rafbækurnar, en Björn Gunnar segir að Amazon. com hafi selt fleiri slíkar fyrir síðustu jól en hefðbundnar bækur.

„Annars var maður líka mikið að skoða það sem birgir okkar, Lenovo, var að kynna þarna,“ segir Björn og kvað hafa verið skemmtilegt að fyrirtækið hafi fengið verðlaun á sýningunni fyrir að vera með flottustu fartölvurnar," segir Björn í samtali við Fréttablaðið.



 



þetta vefsvæði byggir á eplica. eplica vefumsjónarkerfivefumsjónarkerfi - nánari upplýsinga á heimasíðu eplica.