19.01.12

Tekur spjaldtölvuna fram yfir fartölvuna

„Ég nota sennilega spjaldtölvuna í yfir 80% af þeim vinnutíma sem ég þarf á annað borð að vera við tölvu,“ segir Ágúst Einarsson framkvæmdastjóri TM Software, dótturfélagi Nýherja, um tölvunotkun sína sem tekið hefur breytingum eftir að hann fékk í hendur Lenovo ThinkPad spjaldtölvu í samtali við Morgunblaðið.

Ágúst segir spjaldtölvuna spara bæði tíma og fyrirhöfn.“ Það er ekki nema ef ég þarf að skrifa langan samning eða fara inn í bókhaldskerfið okkar að ég þarf að setjast við borðtölvuna,“ segir Ágúst og bætir við að til standi að gera bókhaldsforritið spjaldtölvuvænna,“ segir Ágúst.

Þá er spjaldtölvan hans Ágústs ekki alveg lyklaborðslaus. „Ég hef til taks lítinn stand, svona „dokku“, með lyklaborði, og nota ef ég þarf að slá inn aðeins meira magn af texta. Sú lausn dugar vel fyrir megnið af þeim verkefnum sem þarf að leysa og skeyti sem þarf að senda.“

Verulegur tímasparnaður

Lenovo ThinkPad spjaldtölvan segir Ágúst að sé létt og handhæg, og því auðvelt að hafa við höndina allan daginn. Þar til gerð forrit samræma svo póst og dagbók á milli þeirra tækja sem hann notar: spjaldtölvunnar, borðtölvunnar og farsímans.

„Mér þykir muna sérstaklega um hvað spjaldtölvan er fljót að ræsa sig. Ég þarf ekki nema rétt að ýta á hnapp og ég get byrjað að vinna, en á fartölvunni tók það alltaf a.m.k. þetta hálfa mínútu fyrir tölvuna að koma sér af stað. Þegar ég tek saman allar þessar hálfu mínútur yfir árið þá er örugglega um töluverðan tímasparnað að ræða,“ segir Ágúst í samtali við Morgunblaðið.

Spjaldtölvan kemur að góðum notum hjá Ágústi í TM Software.

<< Til baka