Nýherji á UT messunni

09.02.12

Nýherji verður á UTmessunni á Grand hóteli þann 9. Febrúar

Skrifstofa morgundagsins; spjaldtölvur, sýndarvélar og tölvuský

Á UTmessunni 2012 munu sérfræðingar Nýherja kynna hvernig skrifstofa morgundagsins lítur út með aðstoð spjaldtölva frá Lenovo og Sony. Í skrifstofu morgundagsins er hugbúnaður og stýrikerfi ekki vistaður á útstöðvum notenda heldur hýstur á einum miðlægum stað. Það eru því í raun engin forrit eða stýrikerfi vistuð á búnaði notenda heldur eru þau sótt yfir tölvuský.

Sérfræðingar Nýherja munu sýna hvernig hægt sé að hagnýta spjaldtölvur, sýndarvélar og tölvuský fyrir bæði heimili og fyrirtæki.

Láttu taka mynd af þér á "Suðurskautslandinu"

Einnig verður til sýnis Canon ljósmyndabúnaður, m.a. hágæða linsur, sem gestum gefst kostur á að prófa. Arnaldur Halldórsson, atvinnuljósmyndari, verður á staðnum og mun taka ljósmyndir af gestum á ,,Suðurskautslandinu" en þeir sem láta taka mynd af sér fara sjálfkrafa í pott og geta unnið Canon Powershot myndavél.

Rafn Rafnsson, kvikmyndatökumaður og framleiðandi, mun fjalla um einfaldleika EOS Movie upptökutækninnar þannig að þetta er fábært tækifæri fyrir Canon EOS eigendur sem vilja fá nokkra góða punkta til að taka upp videó.

Nánari upplýsingar um UT messuna er að finna hér.

<< Til baka

Samskiptalausnir