Office 365: Hvað er það?

23.02.12

Ert þú að eyða fjármunum og tíma starfsmanna í daglegan rekstur póst-, upplýsinga- og samskiptakerfa?

Nýherji býður þér til morgunverðarfundar þann 23. febrúar nk. kl. 8:30 - 10:30 þar sem einvalalið sérfræðinga í upplýsingatækni mun fjalla um Office 365.

Office 365 er samþætt hugbúnaðarlausn frá Microsoft sem hentar öllum stærðum og gerðum af fyrirtækjum. Office 365 er alfarið hýst í skýinu hjá Microsoft og er því aðgengilegt notendum hvar sem er, óháð endabúnaði.

Dagskrá:

  • 8:30 - Skráning og morgunverður.
  • 8:55 - Microsoft Office 365 - Halldór Jörgensson, framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi.
  • 9:30 - Microsoft Lync - Snæbjörn Ingi Ingólfsson, Nýherji.
  • 9:45 - Microsoft Sharepoint 2010 - Sigurður Unnar Einvarðsson, TM Software.
  • 10:00 - Lausnaframboð Nýherja í Office 365 - Snæbjörn Ingi Ingólfsson, Nýherji.
  • 10:20 - Reynsla Air Atlanta af Office 365.

Fundurinn fer fram í ráðstefnusal Nýherja, Borgartúni 37 og er öllum opinn að kostnaðarlausu, meðan húsrúm leyfir.

Skráning hér

Nánari upplýsingar um Office 365 skýþjónustu hjá Nýherja er hægt að nálgast hér.

Staðsetning: Ráðstefnusalur Nýherja

<< Til baka

Nýherji