31.10.11
Samningur um viðskiptavakt við Landsbankann
Nýherji hf (NYHR) hefur gert samning við Landsbankann hf um viðskiptavakt á útgefnum hlutabréfum félagsins sem skráð eru í NASDAQ OMX Nordic. Tilgangur samningsins er að efla viðskipti með hlutabréf NYHR í NASDAQ OMX Nordic í því skyni að markaðsverð skapist á hlutabréfunum og verðmyndun verði með skilvirkum og gagnsæjum hætti.
