24.01.12
Fjárfestakynning Nýherja hf. mánudaginn 30. janúar
Fjárfestakynning Nýherja hf. mánudaginn 30. janúar kl. 8:30 í ráðstefnusal Nýherja, Borgartúni 37.
Nýherji hf. heldur kynningarfund fyrir hluthafa og fjárfesta vegna ársuppgjörs félagsins fyrir árið 2011 mánudaginn 30. janúar næstkomandi.
Á fundinum mun Þórður Sverrisson forstjóri kynna afkomu félagsins og svara fyrirspurnum.
Kynningin fer fram í ráðstefnusal Nýherja, Borgartúni 37 og hefst klukkan 8:30.
Morgunverður verður borinn fram kl. 8:15.

