Saga
Nýherji er eitt öflugasta upplýsingatæknifélag landsins en það hóf starfsemi sína þann 2. apríl 1992 með samruna IBM á Íslandi hf. og Skrifstofuvéla-Sund hf. Stofnendur voru IBM í Danmörku, Draupnissjóðurinn, Vogun hf., Óli Kr. Sigurðsson og nokkrir stjórnendur IBM á Íslandi.
IBM á Íslandi stofnað árið 1967
Þrátt fyrir ungan aldur á fyrirtækið sér djúpar rætur í íslensku viðskiptalífi. Forsaga Skrifstofuvéla-Sund hf. hófst t.a.m. árið 1899. Saga IBM á Íslandi hf. hófst með stofnun Skrifstofuvéla hf. árið 1946 en stofnandinn var Ottó A. Michelsen. Árið 1949 urðu Skrifstofuvélar hf. einkaumboðsaðili fyrir IBM hér á landi. IBM á Íslandi hf. var síðan stofnað sem sérstakt fyrirtæki í eigu IBM árið 1967. Skrifstofuvélar lögðu til helming af sínu starfsfólki og var Ottó A. Michelsen forstjóri fyrirtækisins allt til ársins 1982, þegar Gunnar M. Hansson tók við.
Nýherji hf. verður að veruleika
Árið 1987 keypti Gísli J. Johnsen-Skrifstofubúnaður sf. rekstur og lager Skrifstofuvéla hf. og var starfsemin sameinuð undir nafninu Skrifstofuvélar-Gísli J. Johnsen hf. Þar með var fyrirtækið orðið það langstærsta á sínu sviði hér á landi, með umboð fyrir mörg helstu fyrirtæki heims á sviði tölvu- og skrifstofubúnaðar. Árið 1990 komst fyrirtækið í eigu Óla Kr. Sigurðssonar og kallaðist Skrifstofuvélar-Sund hf. þar til það var sameinað IBM á Íslandi. við stofnun Nýherja hf.
Gunnar M. Hansson var forstjóri IBM á Íslandi frá 1982 og einnig forstjóri Nýherja hf. frá stofnun þess 2. apríl 1992 og þar til í maí 1996. Frosti Sigurjónsson tók við starfi forstjóra af Gunnari og gegndi því starfi næstu fimm árin. Þann 1. apríl 2001 tók Þórður Sverrisson við starfi forstjóra Nýherja hf. og hefur hann gegnt því starfi síðan.
Viðskipti með hlutabréf félagsins hófust á Opna tilboðsmarkaðinum 30. nóvember 1995 og á Verðbréfaþingi Íslands (nú OMX Nordic Exchange Iceland) 30. október 1997.
Nýtt húsnæði félagsins í Borgartúni 37 var tekið í notkun á árinu 2000 og hefur síðan hýst meginhluta af starfsemi félagsins.
Dótturfélög á Íslandi
Á árinu 2000 var dótturfélagið Klak ehf. stofnað til að nýta þá reynslu og þekkingu sem Nýherji hf. býr yfir í þágu sprotafyrirtækja á sviði upplýsingatækni. Þá var einnig stofnað dótturfyrirtækið SimDex ehf. til að halda utan um áframhaldandi þróun og sölu samskiptalausna móðurfélagsins. Starfsemi SimDex var hætt árið 2009.
Á árinu 2003 var allt hlutafé í Camson hf. keypt, en fyrirtækið var sérhæft í stafrænum búnaði fyrir útvarps-, sjónvarps- og kvikmyndaiðnaðinn. Camson hf. var sameinað móðurfélaginu á árinu 2004. Þá var í árslok 2003 samið við IBM Nordic AB um kaup á ráðgjafarfyrirtækinu IBM Consulting Services á Íslandi. Nafni félagsins var breytt í ParX ehf. og veitir það innlendum og erlendum aðilum viðskiptaráðgjöf. PriceWaterhouseCoopers keypti rekstur ParX í lok ársins 2009.
Á árinu 2006 var allt hlutafé í Tölvusmiðjunni ehf. á Austurlandi keypt og var það liður í því að styrkja starfsemi Nýherja hf. í þeim landsfjórðungi. Starfsemin var aðallega fólgin í rekstrarþjónustu, hýsingu og notendaþjónustu á sviði upplýsingatækni en félagið hefur nú verið sameinað móðurfélaginu.
Í mars 2007 var gerður samningur um kaup á öllu hlutafé í Link ehf., sem er umboðs- og dreifingaraðili fyrir Sony, Panasonic og fleiri þekkt vörumerki. Í september 2007 gerði Linkur ehf. samning um kaup á rekstri Sony Center í Kringlunni. Í júní 2007 opnaði Nýherji verslunina Sense í Hlíðarsmára í Kópavogi þar sem seldar eru mynd- og hljóðlausnir fyrir heimili og fyrirtæki. Árið 2009 var starfsemi Links og Sense sameinað undir merkjum síðarnefnda félagsins.
Í október 2007 var samið um kaup á ráðandi eignarhlut í upplýsingafyrirtækinu TM Software hf. og dótturfélögum þess; EMR heilbrigðislausnum ehf., Vigor ehf. og Skyggnir ehf. Með kaupunum styrkir Nýherji hf. stöðu sína hér á landi umtalsvert sem alhliða upplýsingatæknifyrirtæki.
Félög erlendis
Í tengslum við aukin erlend verkefni á sviði SAP-hugbúnaðar var dótturfélagið Nýherji A/S í Danmörku stofnað árið 2004.
Í október 2005 var undirritaður samningur um kaup á danska SAP-ráðgjafarfyrirtækinu Applicon A/S í Kaupmannahöfn. Með því var stigið stórt skref í þá átt að styrkja sóknina sem hafin var á erlenda markaði með lausnum tengdum SAP. Í dag er Applicon-samstæðan með starfsemi á Íslandi, í Danmörku, á Bretlandi og í Svíþjóð.
Þá var í maí á sama ári keypt allt hlutafé í danska félaginu DanSupport A/S, en félagið er þjónustufyrirtæki sérhæft í uppsetningu á tölvu-, samskipta- og símkerfum fyrir meðalstór fyrirtæki, með starfsemi í Óðinsvéum, í Kolding og í Kaupmannahöfn.
Í lok janúar 2008 var gengið frá kaupum dótturfélags Nýherja, Applicon A/B á sænska félaginu Marquardt & Partners AB, sem sérhæfði sig í í innleiðingu hugbúnaðar, ráðgjöf og þjónustu við fjármálafyrirtæki.
Nýtt viðskiptamódel
Stjórn Nýherja hf. ákvað að innleiða nýtt viðskiptamódel og skipulag fyrir félagið í október árið 2008. Markmið með breytingunum var að skerpa áherslur með sérhæfingu dótturfélaga á einstökum sérsviðum ásamt því að samhæfa og auka hagkvæmni í rekstri félagsins.
Megin breytingar voru eftirfarandi: Nýherji hf. verður móðurfélag auk þess að annast sölu og vörustjórnun á tölvu og tæknibúnaði. Dótturfélög sérhæfa sig á afmörkuðu sviði þjónustu, hugbúnaðar eða ráðgjafar með það að markmiði að mæta þörfum viðskiptavina á því sérsviði. Dótturfélög Nýherja innanlands árið 2010 voru: Sense ehf., Skyggnir ehf., TM Software ehf., EMR ehf., Applicon ehf., Vigor ehf. og Klak ehf.
Nýtt skipulag 2011
Ákveðið var í upphafi ársins 2011 að innleiða nýtt skipulag fyrir Nýherja og dótturfélög á Íslandi. Megin breytingarnar fólust í sameiningu félaga í tengdri starfsemi og uppbyggingu stærri eininga sem veita þjónustu á sviði upplýsingatækni.
Markmið þeirra breytinga, sem nú verða innleiddar hjá Nýherjasamstæðunni er að efla samkeppnisstyrk og sérstöðu félagsins á innlendum markaði og styrkja þjónustuframboð til viðskiptavina þess.




