Stjórnendur

Þórður Sverrisson

Þórður Sverrisson

Þórður Sverrisson tók við starfi forstjóra Nýherja hf. þann 1. apríl árið 2001. Þórður starfaði áður hjá HF Eimskipafélagi Íslands frá 1982 og gegndi hann stöðu framkvæmdastjóra flutningasviðs frá árinu 1986.

Þórður er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og stundaði framhaldsnám við Viðskiptaháskólann í Gautaborg. Þórður hefur starfað að ýmsum félags- og trúnaðarstörfum.

Kristinn Geirsson

Kristinn Geirsson

Kristinn Geirsson tók við starfi aðstoðarforstjóra Nýherja hf. þann 3. maí 2010. Hann hefur einnig stýrt Fjármála og rekstrarsviði frá apríl 2011. Kristinn er viðskiptafræðingur frá Háskóla Íslands og rekstrarhagfræðingur - MBA - frá Wharton School, University of Pennsylvania.

Hann hefur áður m.a. gegnt störfum framkvæmdastjóra eða forstjóra hjá Glitni banka hf., Sund ehf., Ingvari Helgasyni ehf., Skjá einum ehf., Goða hf. og Samskipum hf.

Þorvaldur Jacobsen

Þorvaldur Jacobsen

Þorvaldur Jacobsen er framkvæmdastjóri Rekstrarlausna. Hann gegndi áður starfi framkvæmdastjóra Tæknisviðs Skyggnis, dótturfélags Nýherja sem var sameinað móðurfélaginu 1. apríl 2011.

Þorvaldur gegndi einnig starfi framkvæmdastjóra Kjarnalausna Nýherja frá árinu 2005-2008. Hann hefur starfað hjá Nýherjasamstæðunni frá 2002.

Þorvaldur var áður sölustjóri hjá Teymi hf. og Opnum Kerfum hf. Hann er rafmagnsverkfræðingur frá Háskóla Íslands, með BS gráðu í tölvunarfræði frá sama skóla og meistaragráðu í verkfræði frá University of Texas í Austin.

Emil G. Einarsson

Emil G. Einarsson

Emil Einarsson er framkvæmdastjóri Fyrirtækjasviðs. Hann starfaði frá 1985 til 1992 sem kerfisfræðingur, m.a. við innleiðingu og hönnun nýrrar gjaldkeralausnar fyrir banka/sparisjóði á Íslandi og síðan sem söluráðgjafi hjá IBM á Íslandi fyrir miðlungs- og stærri móðurtölvur.

Við stofnun Nýherja árið 1992 var Emil söluráðgjafi og hópstjóri til 1995 en frá þeim tíma var hann framkvæmdastjóri við sölu á IBM tölvubúnaði eða fram til febrúar 2005. Hann var framkvæmdastjóri Sölusviðs Nýherja frá 2005-2011.

Emil lauk viðskiptafræðiprófi af þjóðhagskjarna (Cand Oecon) árið 1982 og MBA prófi frá George Washington University 1984.

Elsa Matthildur Ágústsdóttir

Elsa Matthildur Ágústsdóttir

Elsa M. Ágústsdóttir er framkvæmdastjóri Smásölusviðs. Elsa hóf störf hjá Nýherja 2006 sem markaðsstjóri Nýherja og dótturfélaga.

Við skipulagsbreytingar 2008 tók hún við starfi rekstrarstjóra Sense, dótturfélags Nýherja. Áður en hún kom til starfa hjá Nýherja starfaði hún við verkefna- og vörustjórnun hjá Símanum og Vodafone.

Elsa er með B.sc. gráðu í viðskiptafræði frá háskólanum á Bifröst og er með Prince2 vottun í verkefnastjórnun.


Stjórnendur dótturfélaga á Íslandi

Ágúst Einarsson

Ágúst Einarsson

Ágúst Einarsson er framkvæmdastjóri TM Software. Hann hefur veitt TM Software forystu frá ársbyrjun 2007, og hefur starfað hjá félaginu frá árinu 2003. Hann var áður framkvæmdastjóri TrackWell Software, framkvæmdastjóri SAP og IBM deildar Nýherja.

Ágúst er með MS-gráðu í iðnaðarverkfræði frá Háskólanum í Álaborg og BS-gráðu í vélaverkfræði frá sama háskóla.

Ingimar G. Bjarnason

Ingimar G. Bjarnason

Ingimar G. Bjarnason hefur gegnt starfi framkvæmdastjóra Applicon á Íslandi frá nóvember 2008. Ingimar hóf störf á hugbúnaðarsviði Nýherja hf. í febrúarmánuði 1998 og starfaði þar og síðan hjá Applicon ehf. fram til ágústmánaðar 2006. Þá tók Ingimar við sem framkvæmdastjóri Applicon Solutions Ltd. í Bretlandi.

Ingimar lauk prófi í véla- og iðnverkfræði frá Háskóla Íslands árið 1996 og síðan MBA prófi frá IESE Viðskipta-háskólanum í Barcelóna 2003.