Sækja um starf
Frjótt umhverfi fyrir okkar starfsfólk
Með því að smella á vefslóðina hér að neðan getur þú sótt um starf hjá Nýherja með rafrænum hætti.
Innan Nýherja hf. starfa u.þ.b. 230 manns en alls um 750 innan samstæðu Nýherja hf.,
Sem eitt öflugasta upplýsingatæknifyrirtæki landsins leggur Nýherji mikinn metnað í að innan fyrirtækisins starfi ávallt fremstu sérfræðingar landsins á þessu sviði.
Þannig sækja starfsmenn Nýherja á annað hundrað námskeið, ráðstefnur, fundi og aðra menntun erlendis til eflingar á þekkingu sinni.
Þá stunda sérfræðingar félagsins sjálfsnám á Netinu til að auka enn við þekkingu sína og til að viðhalda söluréttindum sínum. Enn fremur sækja starfsmenn námskeið af ýmsu tagi hérlendis.

